Leikur er kannski rétta orðið yfir kvöldið, en þegar öllu er á botninn hvolft skiptu úrslitin litlu máli. Kvöldið snerist fyrst og fremst um stuðning við Ingvar, fyrrum leikmann Stjörnunnar og núverandi leikmann Víkings, sem stendur í sinni erfiðustu baráttu. Víkingur hafði betur í kvöld og Stjarnan er í erfiðri brekku. En brekkur eru til að yfirstíga og ég hef trú á að Stjarnan snúi taflinu við í næsta leik. Um leið sendi ég Ingvari og fjölskyldu mínar innilegustu batakveðjur og allan styrk í baráttunni framundan